top of page

Um Hjaltastaði

STAÐUR TIL AÐ BYGGJA SIG UPP

Hjaltastaðir eru almannaheillafélag sem vinnur að þróun öruggs og styðjandi úrræðis fyrir ungt fólk á aldrinum 18–35 ára sem er á einhverfurófi og/eða glímir við fjölþættan geðrænan vanda.

Úrræðið er ætlað þeim sem falla á milli þjónustukerfa og fá ekki nægjanlegan stuðning til að taka þátt í námi, starfi eða samfélagi. Markmiðið er að skapa nærandi umhverfi þar sem hver og einn fær tíma, rými og einstaklingsmiðaðan stuðning til að efla lífsleikni, sjálfstæði og trú á eigin getu.

​

Hjaltastaðir eiga að vera meira en tímabundið skjól. Þeir eiga að vera samfélag sem byggir á virðingu, hlýju, skilningi og samstöðu – staður þar sem fólk fær tækifæri til að finna styrkleika sína, byggja sig upp og taka skref í átt að innihaldsríku og sjálfstæðara lífi.

​

Verkefnið er unnið í minningu Hjalta Snæs Árnasonar og sprottið af þeirri sannfæringu að enginn eigi að standa einn eða falla á milli kerfa.

​

ÞRÓUN VERKEFNISINS

Hjaltastaðir eru nú í þróunarferli þar sem unnið er markvisst að því að móta framtíðarúrræðið í nánu samtali við ríki, sveitarfélög, fagfólk, notendur og aðstandendur. Markmiðið er að byggja upp sjálfbært, faglegt og raunhæft úrræði sem verði hluti af íslensku velferðarkerfi til framtíðar.

​

Við byggjum þróunarvinnuna meðal annars á hugmyndafræði Bij Bram í Hollandi, sem hefur sýnt fram á mikilvægi þess að skapa samfélag þar sem einstaklingar fá tækifæri til að lifa með reisn, tilheyra og taka virkan þátt í daglegu lífi út frá eigin styrkleikum. Jafnframt leggjum við áherslu á að þróa lausn sem tekur mið af íslenskum aðstæðum og þörfum þeirra sem hér búa.

​

Gildin okkar

Virðing · Hlýja · Samstaða · Von

​

Við trúum því að allir eigi skilið stað þar sem þeir fá að tilheyra, finna styrkleika sína og byggja sig upp á eigin forsendum.

​

Hjalti Snær
​Árnason

HjaltiSnær.jpg

Hjalti Snær Árnason var ungur maður með stórt hjarta, hlýja nærveru og mikið að gefa. Hann var á einhverfurófi og glímdi við geðrof síðustu tvö ár ævi sinnar. Á þeim tíma kallaði hann eftir hjálp, en fann ekki það úrræði sem hann þurfti.

​

Hjalti lést rétt fyrir 23 ára afmælið sitt, 2025.

Missir hans varð fjölskyldu og vinum ólýsanlega sár, en jafnframt kveikjan að þeirri ákvörðun að reyna að breyta einhverju til framtíðar.

​

Hjaltastaðir bera nafn Hjalta vegna þess að við viljum að saga hans verði afl til breytinga. Verkefnið er unnið í minningu hans og með þá von að fleiri fái þann stuðning, það öryggi og þá von sem hann átti skilið.

​

Við getum ekki breytt því sem gerðist, en við getum unnið að því að enginn annar þurfi að upplifa það sama.

STJÓRN HJALTASTAÐA

Guðrún Huld Gunnarsdóttir

Formaður stjórnar

Gerður Ósk Hjaltadóttir

Meðstjórnandi

Íunn Eir Gunnarsdóttir

Gjaldkeri

Guðrún María Jónsdóttir

Meðstjórnandi

Aníta Stefánsdóttir

Ritari

Júlía Júlíusdóttir

Meðstjórnandi

bottom of page