VIÐBURÐIR
Við stöndum með
þeim sem falla
á milli kerfa
_HEIC.png)
VIÐBURÐIR FYRIR HJALTASTAÐI
HJALTALUNDUR
VON & VÖXTUR
_HEIC.png)
Von & vöxtur er viðburður þar sem fólk kemur saman í Hjaltalundi við Hamra í Kjarnaskógi á Akureyri í anda samstöðu, vonar og framtíðar.
Með gróðursetningu trjáa, tónlist og samveru vex Hjaltalundur ár frá ári – samhliða þeirri vegferð að gera Hjaltastaði að veruleika.
REYKJAVÍKURMARAÞON

Reykjavíkurmaraþonið er mikilvægur liður í fjáröflun og vitundarvakningu Hjaltastaða. Þar kemur fólk saman, hleypur fyrir málefnið og hjálpar okkur að vekja athygli á þeirri vegferð að gera Hjaltastaði að veruleika.
Hvert skref skiptir máli – saman komumst við nær markmiðinu.
Viltu vera með okkur næst?
Taktu þátt í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir Hjaltastaði – hlauptu eða gakktu með okkur, safnaðu áheitum og vertu hluti af hópnum. Saman tökum við skref í átt að framtíð Hjaltastaða.
SÖFNUM FYRIR HJALTASTAÐI

Söfnum fyrir Hjaltastaði var haldinn í Vitanum á Akureyri haustið 2025 og var einn af fyrstu viðburðunum þar sem framtíðarsýn Hjaltastaða var kynnt og athygli vakin á verkefninu.
Fólk kom saman, sýndi ómetanlegan stuðning og lagði sitt af mörkum til verkefnisins. Viðburðurinn markaði eitt af fyrstu skrefunum í vegferðinni að því að gera Hjaltastaði að veruleika.
VILTU LEGGJA VERKEFNINU LIÐ?
Embark on extraordinary adventures with our tailored travel experiences, designed for your enjoyment.