Gott samtal við Akureyrarbæ um næstu skref Hjaltastaða

Aug 17
1 min read
Stjórn Hjaltastaða átti góðan og uppbyggilegan fund með bæjarstjóra og meirihluta bæjarráðs Akureyrarbæjar.
Á fundinum var rætt um Hjaltastaði, framtíðarsýn verkefnisins og næstu skref. Við erum ánægð með samtalið og finnum að verkefnið er að færast áfram í rétta átt.
Framundan er frekara samtal og áframhaldandi vinna sem við bindum vonir við að gefi verkefninu byr undir báða vængi og styðji við næstu skref í þróun Hjaltastaða.
Við hlökkum til áframhaldandi samtals og samstarfs. 💙

Comments